fbpx

Skilmálar

Upplýsingar um fyrirtækið

Alpha Agency ehf.

Kt: 440521-2070

Vsk númer: 141093

Hafnargata 90, 230 Reykjanesbæ

verslun@alphagym.is

Vinsamlegast lestu þessa skilmála og fyrirvara áður en þú notar þessa vefsíðu. Not þín af þessari vefsíður staðfesta skilyrðislaust samþykki þitt á eftirfarandi skilmálum og fyrirvörum. Ef þú ert ekki samþykkur þessum skilmálum og fyrirvörum þá skaltu ekki nota þessa vefsíðu.

Vörur, innihaldsefni og önnur atriði

Allt efni sem kynnt er og fjallað er um á þessari vefsíðu (þ.m.t. vörur og verð), www.verslun.alphagym.is, getur tekið breytingum án nokkurra fyrirvara eða tilkynninga. Eigandi þessarar vefsíðu, Alpha Agency ehf., tekur skynsamlegar ákvarðanir í textavali og framsetningu þeirra vara og þjónustu sem í boði er á www.verslun.alphagym.is. Það er á þína ábyrgð að leggja fram réttar persónuupplýsingar þegar þú átt viðskipti við Alpha Agency ehf. Þegar þú verslar vörur og þjónustu af Alpha Agency ehf. gefur þú til kynna að vörurnar verða notaðar skv. þeim leiðbeiningum og upplýsingum sem eru að finna á þeim. Öll misnotkun á vörum og þjónustu sem þú færð á vefsíðu www.verslun.alphagym.is er algjörlega á þína ábyrgð.

Greiðsluupplýsingar og sendingarmáti

Viðskiptavinum býðst einn greiðslumöguleiki, greiðsla með greiðslukorti í verslun Alpha Agency ehf. Viðskiptavinir greiða ávallt pöntunina að fullu áður en pöntunin er afgreidd. 

Afgreiðslufrestur og ófáanlegar vörur

Afgreiðslufrestur pantana sem berast í gegnum vefsíðu þessa er 1-2 virkir dagar eftir að pöntun og greiðsla berst. Berist pöntun um helgi eða á föstudegi þá lengist afgreiðslufrestur sem nemur 1 til 2 helgidögum.  Það verður ekki hjá því komist að vörur geta einstaka sinnum verið uppseldar. Komi það fyrir mun Alpha Agency ehf. hafa samband við þann er leggur inn pöntunina og kynna honum aðra valkosti, hvenær varan kemur aftur eða endurgreiða honum uppselda vöru að fullu verði þess óskað. Alpha Agency ehf. mun eftir bestu getu uppfæra vefsíðuna í samræmi við birgðarstöðu.

Notkun þessarar vefsíðu

Hönnun þessarar vefsíðu, texti, útlit, myndefni, upplýsingar, innihald og annað efni sem hægt er að afrita og niðurhala af þessari vefsíðu eru vernduð með lögum og má ekki nota eins og tilgreint er hér nema með skriflegu samþykkis Alpha Agency ehf. Þú mátt ekki eiga við eða breyta því efni sem er að finna á þessari vefsíðu, með afritun eða niðurhali, hvorki í auglýsingar né fréttar eða auglýsingar tilgangi. Slíkt brýtur í bága við núgildandi lög og reglur.

Ábyrgðir

AFNOT ÞÍN AF ÞESSARI VEFSÍÐU ER Á ÞÍNA ÁBYRGÐ. UPPLÝSINGAR, EFNI OG ÞJÓNUSTA SEM ER ÚTVEGAÐ Á ÞESSARI VEFSÍÐU ERU ÚTVEGUÐ EFTIR BESTU VITUND ALPHA AGENCY EHF. EFNI OG UPPLÝSINGAR ÞESSARAR VEFSÍÐU KANN AÐ VERA GAMALT OG ALPHA AGENCY EHF. HEFUR ENGAR SKYLDUR TIL AÐ KOMA MEÐ ÁBENDINGAR EÐA LEIÐRÉTTINGAR Á RÖNGU EFNI.

Breytingar á skilmálum og fyrirvörum

Alpha Agency ehf. áskilur sér rétt til að breyta skilmálum og fyrirvörum hvenær sem er.

Heilsutengdar upplýsingar

Upplýsingarnar á þessari vefsíðu eru einungis ætlaðar til að upplýsa og koma ekki í stað ráðgjafar lækna eða annarra heilsuráðgjafa. Þú ættir ekki að nota upplýsingar þessarar vefsíðu til að lækna eða greina heilsuvandamál eða sjúkdóma. Upplýsingar og fullyrðingar vara þeirra sem þú sérð á síðunni hafa ekki fengist staðfest af Matvælastofnun Íslands (MAST) né Lyfjastofnun Bandaríkjanna. Vörur á vefsíðu þessarri eru ekki ætlaðar að lækna, greina eða hindra sjúkdóma af nokkru tagi. Þér er ráðlagt að lesa allar upplýsingar á vöru áður en notkun hefst.

Vöruskil

Viðskiptavinir okkar hafa 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að þeir hafi ekki notað vöruna, hún sé ekki sérsniðin þörfum kaupanda, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Niðurtalning hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Varan fæst ekki endurgreidd en boðið er upp á inneignarnótu í verslun Alpha Agency ehf.

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Skilmálar þessir gilda frá 6. janúar 2024.

Yfirlýsing

Alpha Agency ehf. virðir einkamál og áhyggjur viðskiptavina sinna. Þess vegna tökum við persónulegar upplýsingar eins og nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer sem trúnaðarupplýsingar.

ALLAR VÖRUR OG ÞJÓNUSTA SEM AFGREIDDAR ERU Í GEGNUM ÞESSA VEFSÍÐU ERU Á ÁBYRGÐ FRAMLEIÐANDA ÞEIRRA, DREIFINGARAÐILA OG SÖLUAÐILA. ALPHA AGENCY EHF. BER ENGA ÁBYRGÐ Á FULLYRÐINGUM ÞEIRRA VARA SEM ERU Á VEFSÍÐUNNI, HUGSANLEGRA AUKAVERKANNA, MISNOTKUNNAR, RANGS VALS Á VÖRUM EÐA MISSKILNINGS SEM KANN AÐ VERÐA.